REYKJAVÍK MEDICAL

Since 2020

REYKJAVÍK MEDICAL

Hjá okkur á Reykjavík Medical færðu faglega og persónulega þjónustu hjá heilbrigðismenntuðu starfsfólki. 

Við leitumst ávallt eftir því að finna réttu meðferðina sem hentar þér og þínu andlistfalli.  Við erum sem betur fer ekki öll steypt í sama form og að sama skapi er ekkert eitt sem hentar öllum.  Þegar við eldumst þá verða breytingar á húðinni okkar, framleiðsla kollagens minnkar svo um munar, fitupúðarnir í andlitinu rýrna sem og höfuðkúpan sem gerir það að verkum að okkur líkar ekki alltaf það sem við sjáum í speglinum því það koma skuggar og slappleiki sem var ekki áður.  Við reynum eftir fremsta megni að endurskapa það sem áður var án þetta að ýkja og skapa ónáttúrulegt útlit. 

Náttúrulegt er mottóið hjá okkur og áskilum við okkur rétt til þess að neita viðskiptavinum okkar um meðferð ef það samræmist ekki því sem við teljum ykkur fyrir bestu.  Eða í þeim tilfellum þar sem það sem við erum með í boði er ekki það sem gefur ykkur þann árangur sem við viljum sjá þá vísum við ykkur til réttra aðila.  Samvinna er lykilatriði að okkar mati - með ykkar besta að leiðarljósi.

xArtboard 1